Handsmíðað EIK eða Douglas
Egill-Ölver – Garðbekkur með ölgeymslu, örmum og krossfætur – 160 cm
Egill-Ölver – Garðbekkur með ölgeymslu, örmum og krossfætur – 160 cm
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Egill-Ölver er ekki bara garðbekkur eða útibekkur – hann er fundarstaður, sögustaður og ölstofn allrar gleði. Smíðaður úr traustum og slitsterkum harðviði, með fornlegum útskurði sem minnir á gömlu sögurnar, býður hann upp á óviðjafnanlega samverustund.
Hægt er að merkja stafi í bakið og því getur verið sniðug sem gjöf með nöfnum hjóna, húsa, sveitabæja eða sumarhúsa. Sniðugt fyrir utan fyrirtæki og verslanir til að minnka þjófnað
Þungur og fýkur ekki – eins og sannur víkingur!
Sterkbyggður úr EIK og Douglasgreni – lifir kynslóðum saman.
Innbyggð geymsla fyrir öl – því enginn víkingur vill sitja þyrstur.
Handsmíðað meistaraverk – hver bekkur er einstakur
Hvort sem þú vilt rifja upp hetjusögur eða einfaldlega njóta góðra stunda með félögum, þá er Egill-Ölver réttur garðbekkur til þess. Skál fyrir góðri hönnun!
✔ Sambland af fallegu rúnuðum og náttúrulöguðum köntum og sterklegum plönkum
✔ Vandað handbragð og einstök hönnun með EIK eða Douglasgreni.
✔ Öflug, þung og endingargóð smíði sem stends óveður
✔ Fullkomið fyrir garða, sumarbústaði og útisvæði
✔ Frí heimsending á SV-landi
Egill Skallagrímsson var einn mesti kappi og skáld Íslendingasagnanna – sterkur, óstöðvandi og orðheppinn. Hann var jafnt þekktur fyrir víkingalíferni sitt og meistaralegan kveðskap, þar sem hann sameinaði kraft og list í óviðjafnanlegri blöndu."
Ending með viðarvörn (1–3 ára fresti): EIK 50-70+ ár, Douglas 30-50+ ár
Viðartegund: Eik eða Douglasgreni
Algeng ending ófúavarið: EIK 25-35 ár, Douglas 15-25 ár
Fjöldi sæta: 3
Handsmíðað: Já
Þyngd: u.þ.b. 60 kg
Share


